Hátt í 700 milljón leitir að gistingu eru framkvæmdar í hverjum mánuði á vefsvæðum Expedia Group og þar bíður næsti gesturinn þinn eftir að þú birtir hótelið þitt í dag.
Náðu til milljóna ferðamanna með því að skrá hótelið þitt
Náðu vexti sem ekki er mögulegur með núverandi bókunaráætlun þinni. Þegar þú skráir þig hjá Expedia Group nærðu til verðmætra ferðamanna sem bóka oftar, dvelja lengur og eyða meira.*
Fleiri bókanir frá ferðamönnum sem erfitt er að ná til á eigin spýtur
Ein birting hjá Expedia Group nær til ferðamanna á Expedia.com, Hotels.com, Travelocity, alþjóðlegu B2B-dreifikerfi okkar með yfir 75.000 ferðaþjónustufyrirtækjum og helstu gervigreindarverkvöngum dagsins í dag. Komdu gististaðnum þínum, hvort sem um er að ræða hótel og mótel eða gistingu með morgunverði, fyrir augu ferðamanna sem eyða 18% meira* og náðu allt að 40% fleiri bókunum utan háannatíma.*
Ertu þegar samstarfsaðili? Innskrá
200+
10%
41%
Samkeppnisforskot þitt til að ná í bókanir hótelgesta
Snjallari tekjutengdar ákvarðanir hefjast í Partner Central, verkvangi Expedia Group fyrir gistisamstarfsaðila. Hafðu yfirsýn yfir hvað er að gerast á markaðnum þínum, fáðu gervigreindknúnar ráðleggingar og stilltu verð af öryggi, allt á einum stað. Ertu að vinna með umsjónaraðila tengingar? Ýmsa uppfærslur eru samstilltar sjálfkrafa, til að þú getir eytt minni tíma í stjórnun og meiri tíma í vöxt.
Vöxtur með gervigreindarknúnum ráðleggingum
Gríptu til aðgerða út frá sérsniðnum ráðleggingum til að bæta árangur, fjölga bókunum og auka viðskipti um um það bil 9%.
Sérfræðiaðstoð þegar þú þarft á henni að halda
Sérfræðiaðstoð og sjálfsafgreiðsluverkfæri auðvelda þér að spara tíma og stjórna þínum rekstri af öryggi, allt frá innleiðingu til daglegra fyrirspurna.
Umbreyttu snjallari verðlagningu í fleiri bókanir
Berðu verð þín saman við svipaða gististaði til að þú getir verðlagt af meira öryggi og brugðist hraðar við breytingum á eftirspurn á markaði.
Náðu til eftirspurnarinnar á undan samkeppnisaðilunum
Hafðu allt til reiðu til að takast á við breytta eftirspurn ferðamanna og staðbundna þróun. Fínstilltu verð, tilboð og áætlun út frá staðbundnum markaðsgögnum.
Hefstu handa í þremur skrefum
Það er einfaldara að byrja en þú heldur. Aðeins örfá skref standa á milli þín og ferðamanna um allan heim sem þú gætir annars ekki náð til. Skráðu gististað sem er tilbúinn til bókunar.
Raunverulegir samstarfsaðilar. Raunverulegur árangur.
Kynntu þér hvernig hótel af öllum stærðum og gerðum eiga í samstarfi við Expedia Group til að ná til nýrra ferðamanna, auka tekjur sínar og breyta eftirspurn í fleiri bókanir.
- Náðu til fleiri ferðamanna
- Miðaðu á næstu gesti
- Breyttu eftirspurn í bókanir
„Sú alþjóðlega dekkun sem þið náið er gríðarlega mikil. Hótelsamstæðan okkar ver nánast engum beinum peningum í markaðssetningu þar sem við höfum ekki jafn mikla dekkun og þið. Af þeim sökum sjáum við ekki um markaðssetninguna, við látum ykkur um hana fyrir okkur.
Við gerum hótelsamstarfsaðilum um allan heim kleift að ná til fleiri ferðamanna og efla rekstur sinn, hvort sem um er að ræða sjálfstæð hótel eða alþjóðleg vörumerki.
„Við höfum mjög lítið fjármagn í markaðsstarf og lítil tilföng til að reka okkar eigið vildarkerfi. Þess vegna er [Expedia Group] er ekki aðeins tæknilegur samstarfsaðili, heldur einnig eins konar utanáliggjandi markaðsdeild.“
Við gerum hótelsamstarfsaðilum um allan heim kleift að ná til fleiri ferðamanna og efla rekstur sinn, hvort sem um er að ræða sjálfstæð hótel eða alþjóðleg vörumerki.
„Samstarfið við Expedia er okkur mjög mikilvægt. Það skiptir höfuðmáli að geta beitt markaðsverkfærum Expedia Group til að auka eftirspurnina þegar við þurfum á því að halda.“
Við gerum hótelsamstarfsaðilum um allan heim kleift að ná til fleiri ferðamanna og efla rekstur sinn, hvort sem um er að ræða sjálfstæð hótel eða alþjóðleg vörumerki.
Tilbúin(n) að ná til eftirspurnar ferðamanna um allan heim?
Viltu skrá heimagistingu?
Ef þú ert með heimili, íbúð eða frístundahúsnæði gæti Vrbo verið rétti kosturinn fyrir þig.
Spurningar sem vert er að spyrja áður en hótelið er skráð
Fáðu svör um birtingu gististaðarins þíns á netinu og kynnt þér hvernig Expedia Group getur gert þér kleift að ná til nýrra markhópa og fjölga bókunum utan núverandi sölurása þinna.
- Auktu tekjurnar þínar
- Hefjast handa
- Kynntu þér hvernig greiðslur virka
Expedia Group á í samstarfi við alla helstu gervigreindarverkvanga, þar á meðal Google, OpenAI, Perplexity og Amazon, til að birtingin þín nái til ferðamanna þegar þeir leita, skipuleggja og bóka með nýjum gervigreindarverkfærum, ekki bara hefðbundinni leit.
Já! Þegar þú birtir gististaðinn á netinu hjá Expedia Group geturðu náð til þeirra milljóna ferðamanna sem reglulega bóka ferðir sínar í gegnum vefsvæði okkar. Birtingin þín getur einnig birst á alþjóðlegu B2B-dreifikerfi okkar með yfir 75.000 ferðaþjónustufyrirtækjum, þar á meðal ferðaskrifstofum, flugfélögum, stórfyrirtækjum í ferðaþjónustu, fjármálastofnunum og vildarklúbbum. Þú getur náð til ferðamanna sem þú átt erfitt með að ná til á eigin spýtur og náð næstum 10% aukningu í seldum gistinóttum á virkum dögum.*
Nei, aðeins einu sinni. Þegar þú ert í samstarfi við okkur mun skráningin þín birtast á nokkrum af stærstu ferðavefsvæðum í heimi, þar á meðal á Expedia.com, Hotels.com, Travelocity, Orbitz, Wotif og fleirum. Einnig getur birtingin þín komist í dreifingu á B2B-dreifikerfi okkar. Við vinnum með rúmlega 75.000 ferðaþjónustufyrirtækjum og 200.000 ferðaskrifstofum um allan heim og þjónustum yfir 200 lönd/svæði. Saman ná vefsvæði okkar yfir nánast alla þætti skoðunar, skipulagningar og bókunar ferðalaga. Fólk sem hyggur á ferðalög í tómstundaskyni eða viðskiptalegum tilgangi, sem hefur mismunandi smekk og fjárráð treystir á vefsvæði okkar fyrir allar sínar ferðaþarfir
Engin skráningargjöld, afskráningargjöld eða langtímaskuldbinding. Umboðslaun Expedia Group eru byggð á bókunum og hlutfall þeirra er mismunandi á milli markaða.
Sum hótel geta komið birtingu sinni í loftið á aðeins 30 mínútum. Uppsetningartíminn er aftur á móti breytilegur, allt eftir þörfum hvers og eins gististaðar og þeim upplýsingum sem þú hefur tiltækar. Heildartíminn kann einnig að ráðast af flækjustigi uppsetningarinnar og hvort þú vinnur með hugbúnað umsjónaraðila tengingar.
Partner Central er staðurinn þar sem þú heldur utan um bókanir, stillir af framboð, uppfærir verð og tryggir að birtingin sé rétt skráð. Fjöldi samstarfsaðila notast einnig við umsjónaraðila tengingar sem er samþættur við kerfi Expedia Group. Það getur auðveldað þér að stýra daglegum verkefnum eins og bókunum, verðlagningu, framboði, umsögnum, skilaboðum gesta eða tilboðum. Sumir umsjónaraðilar tengingar tengja einnig við Partner Central, sem veitir þér aðgang að fleiri verkfærum á borð við greiningu samkeppnisaðilalista, rauntímaverðlagningu á markaði og markaðsáætlunum.
Þegar hótelið þitt er komið í loftið færðu aðgang að verkfærum og stuðningi til að auðvelda þér að halda utan um reksturinn þinn og gera honum kleift að vaxa. Þetta getur falið í sér aðstoð við bókanir og uppfærslur birtinga, ásamt upplýsingum um verð og markaðsþróun og tilboð fyrir viðskiptavini á grunni gagna og markaðsinnsýnar til að auðvelda þér að halda samkeppnishæfni og selja fleiri hóteldvalir.
Já. Samstarfsaðilar Expedia Group hafa aðgang að margvíslegum verkfærum og gagnagreiningu sem hjálpa þér að þróa og innleiða arðbærar tekjustýringaráætlanir. Við erum stöðugt að þróa og deila upplýsingum um bestu starfshætti til að auðvelda þér að ná árangri.
Já. Þú getur tengt Channel Manager, bókunar-, sölu- og umsýslukerfi gististaðarins eða aðra tengingarlausn til að sjálfvirknivæða dagleg verkefni. Við innleiðingu kunnum við að falast eftir upplýsingum um hvaða tengingarlausn þú notar til að við getum sett gististaðinn þinn upp á réttan máta. Expedia Group vinnur einnig með viðurkenndum umsjónaraðilum tengingar. Upplýsingar um umsjónaraðilana sem við vinnum með er að finna í Leiðbeiningar um umsjónaraðila tenginga. Þarftu hjálp? Starfsfólk okkar er til þjónustu reiðubúið í gegnum allt innleiðingarferlið.
Umboðslaun fyrir bókanir eru mismunandi á milli markaða og við deilum upplýsingum um hlutfall þíns markaðar í samningsferlinu.
Expedia Group tryggir ferðamönnum ekki eingöngu þægilega og örugga upplifun við bókun herbergja hjá þér heldur fjárfestir það mikið í auglýsingum, stafrænni markaðssetningu og kynningum á samfélagsmiðlum til að laða viðskiptavini víðs vegar að úr heiminum að þínum markaði og gististöðum. Við erum stöðugt að sækja gögn til að öðlast meiri innsýn og skilja betur nýja þróun í ferðaiðnaðinum þannig að við getum bæði nýtt og þróað öflugustu, ókeypis verkfærin sem hjálpa þér að auka viðskipti þín. Við starfrækjum einnig þjónustumiðstöðvar fyrir ferðamenn og samstarfsaðila til að leysa öll þau erfiðu vandamál er lúta að flutningum sem óhjákvæmilega koma upp þegar fólk leggur af stað til að skoða heiminn.
*Expedia Group, Traveler Value Study, 2024; 41% meiri eyðsla í hótel hjá bandarískum ferðamönnum sem bóka í gegnum B2B-dreifikerfið okkar samanborið við ferðamenn sem ekki eru á Expedia Group
**Innanhússgögn Expedia Group, 2025; 10% fleiri bókanir herbergja á virkum dögum í gegnum B2B-dreifikerfið okkar samanborið við ferðamenn sem ekki eru á Expedia Group